Halló og velkomin á heimasíðuna mína.
Ég heiti Sunna Mjöll og er nýflutt til Keflavíkur


Ég:
Ég fæddist á Landspítalanum föstudagsmorguninn 4. febrúar 2005 kl. 4:20. Ég var 3795 gr. og 53 sm. Ég reyndi svolítið á þolinmæði foreldra minna, og þá sérstaklega móður. Meðgangan var henni strembin og lét ég að auki bíða eftir mér í 11 daga. Til að bæta henni það upp kom ég með hraði þegar mér fannst það tímabært.
Mamma mín heitir Jóhanna María og pabbi minn heitir Elías Þór. Ég á 2 stóra bræður, sá eldri Daníel Freyr er fæddur 6. janúar 1993 og sá yngri Viktor Ingi er fæddur 22. desember 2001; Hann á sína heimasíðu sem þú getur skoðað hérna.




Annað:
Vatnsberinn
20. janúar - 18. febrúar

Vatnsberabarnið fer fljótt sínar eigin leiðir hvort sem það er í fataburði, hugsun eða hegðun. Það er uppfinningasamt, frumlegt og fullorðinslegt og lærir snemma að tjá sig og skila heim fullorðinna. Litli vatnsberinn vill sjá um sig sjálfur og fara sínu fram og er oft á tíðum mjög dramatískur. Ef honum leiðist gæti hann átt það til að stofna til vandræða bara til að fá spennu og drama inn í líf sitt. Besta uppeldisaðferðin er fólgin í umræðu og skynsamlegum fortölum. Vatnsberinn er þrjóskur og lítið þýðir að skipa honum fyrir eða beygja hann til hlýðni með skömmum. Best er að koma fram við barnið sem vitsmunalegan jafningja því vatnsberinn er hugarorkumerki og því skipa umræður og skynsamlegar fortölur fyrsta sæti. Vatnsberabörnin geta sýnt ást og væntumþykju á frekar ópersónulegan hátt. Þau eru yfirleitt vingjarnleg og yfirveguð en ekki mjög tilfinningasöm og oft illa við mikið kjass.
Þú ert gestur nr. 9937